Prófíll

  • Nafn: Sveinn Elías og Pála Dröfn
  • Netfang: sveinnej@hotmail.com /pala_drofn@hotmail.com
  • Staður: Montgomery, Alabama
  • Heimilisfang: 164C Saddleback Ridge Drive
  • Um mig: Símanúmerin okkar: Svenni: (+1) 334 233 0678 Pála: (+1) 334 233 1429

Auglýsing

Atburðarteljari

Svenni kemur eftir 17 daga

27. nóvember 2008 klukkan 16:25
ákvað að kíkja inná síðuna okkar, var eiginlega bara búin að gleyma henni hehe En það er allt gott að frétta við sameinuðumst í 12 daga í MGM, AL. Ég fór út eftir prófin hjá mér sem gengu alveg glimrandi vel og var í 12 daga og kom svo beint aftur í skólann sem er á blússandi siglingu eins og alltaf.. hehe Vorum að busa nýja hópinn í dag og það var bara gaman :) Á eftir að taka allavega 2 ef ekki 3 próf fyrir jól en það verður fljótt að líða, Svenni kemur 14. des til mín og svo förum við 19.des til Akureyrar... vá ég get ekki beðið sko.. langar bara að vera í tröllagilinu eða útí sveit, uppí rúmi að knúsa svenna hehe ... gott plan um jólin :) Hlakka reyndar hefi til að fá aðfangadag, jóladag, öll jólaboðin, gamlárs og allt það ;) En sýnist samt að Ingva langi að fá einhverjar fréttir af þér svenni minn hehe ætla að nýta mér síðuna hérna og segja ykkur sem lesið þetta að ég er að taka heim í plokk&lit, vax og handsnyrtingu. Svo þegar nær líður jólum verð ég vonandi að taka í neglur líka. Ég er með fína aðstöðu, Bekk og svoleiðis. Endilega hafiði samband ef þið hafið áhuga (sími: 868-2061) Er að hugsa um að setja inn myndir á eftir ...:) Pála Dröfn í mesta jólaskapinu:)
Sveinn Elías og Pála Dröfn
5 athugasemdir

Ísland í úrslitin nanana ísland í úrslitin naaanananana

22. ágúst 2008 klukkan 15:05
Sveinn Elías og Pála Dröfn
3 athugasemdir

búið í bili

09. maí 2008 klukkan 22:25
Svalurjæja kæru lesendur

við erum komin heim þannig við ætlum að leggja þetta blogg á hold.... gæti vel verið að við tökum upp þráðinn að nýju en þangað til eru það bara okkar eigin blogg Brosandi

Hér kemur samt aðeins af heimferðinni... lögðum af stað frá MGM, AL til Atlanta á sunnudaginn 4 maí eftir að hafa workað tanið þann daginn og fórum á svakalega KAnye West tónleika með Grassa (reikna með myndbandi hér á næstunni, þegar Svenni er buinn að setja myndbandið frá tónleikunnum á netið)!! gistum svo á vægast sagt ógeðslegu hóteli í Atlanta (fengum 2 hringingar frá mellu sem var að bjóða Svenna "company") .. alveg viðbjóður sko!!
En svo flugum við til Boston snemma um morguninn og Vera náði í okkur og við fengum gistingu hjá henni í eina nótt... Við byrjuðum á því að fara í hádegismat á Cheers, sem var fyndið.. svo fórum við svenni í verslunarleiðangur... svo komu þau og við fórum á bar sem heitir The beanland Bar hehe gott nafn og tókum nokkra pool og svo bara heim því fæturninr voru alveg að gefa sig! en þetta kvöld var algjör snilld... daginn eftir sváfum við bara út því flug til íslands og keyrsla til Akureyrar framundan ... fórum svo um hádegi með ljósmyndarinn (Vera) og hún fékk að mynda okkur aðeins við eitthvað ´hús sem var í niðurníslu.. rosa flottar myndir hja henni, sérstaklega af Svenna cowboy heh .. Við kíktum svo aðeins í mollið ogsvo til Írisar vinkonu hennar Veru og svo bara uppá flugvöll... Takk kærlega fyrir okkur Vera, þetta var alveg frábær tími Glottandi

Siggi frændi og Sonja Kristín náðu svo í okkur uppá leifstöð og skutluðu okkur beinustu leið til Ásrúnar og Bjögga og við sáum prinsinn loksins berum augum... svo sætur, manni langaði bara ekkert að skila honum hehe Koss

Svo brunuðum við heim í sveitasæluna bara og erum búin að hafa það rosa gott.... þó svo að foreldrarnir í Kálfsskinni séu bara stungnir af til Kína í 3 vikur hehe...

biðjum að heilsa í bili...
adios
Sveinn Elías og Pála Dröfn
2 athugasemdir

Nýr frændi og eintóm gleði

14. apríl 2008 klukkan 04:26
þar sem að ég er orðinn fáránlega góður í að setja mynband inn á þessa síðu ætla ég að reyna að gera það bara mðe hverri einustu færslu...

það er fínt að frétta hérna í Alabama fylki...spiluðum leik á laugardaginn sem við unnum 2-1 og Dale var maður leiksins með mark og assist sem segir meira en 1000 orð (bara eins og mynd skiluru) en þeir sem vita hvað Dale getur í fótbolta geta bara lagt saman tvo og tvo og fengið út grútaðan leik!

síðan var smá íslendingalokahóf í gær ef kalla má...fórum út að borða á Garrets og biðum í einn og hálfan eftir matnum en hann var reyndar mjög góður, ég fékk mér lambakjöt og önd sem að klikkaði ekki neitt og dró svo Pálu að landi með Filet mignion bitann hennar þannig að þetta var góð máltíð...síðan var heilsað uppá Bakkus og honum gerð góð skil það sem eftir lifði kvölds, þar sem við fórum til Íranna í partý sem var algjör snilld og Matt var á G-strengnum sínum í pílukastinu og Gústi að dansa afturábak og bara nefndu það!!! brjálaður stemmari hehe

annars er lífið ægilega gott og batnaði heldur á föstudaginn þegar að Ásrún systir og Bjöggi eignuðus lítinn strák sem að ég er stoltasti frændi í heimi af þessa daganaSvalur væri soltið mikið til í að vera heima til að kíkka á hann en það er nú ekki langt í það...Til hamingju..

usssss hvað hann er laaang flottastur

en ég ætla síðan að enda þetta á einu myndbandi sem að er ægilega fyndið...aftur er Bjartmar í sviðsljósinu enda með eindæmum fyndið eintak, þetta er síðan ég hann og Snorri fórum á Lágheiði í vetrarfríinu í MA eftir prófin í 4ja bekk...mikið gaman mikið grín og njótið vel...


Þangað til næst

Svenni og Pála
Sveinn Elías og Pála Dröfn
18 athugasemdir

Smá tékk hérna á síðunni

09. apríl 2008 klukkan 22:15


ætlaði að tékka hvort að ég gæti sett inn mynband hérna á síðuna og ætla að leyfa bjartmari að eiga heiðurinn af því ef það virkar...

Svenni
Sveinn Elías og Pála Dröfn
9 athugasemdir

Gleðilega páska

24. mars 2008 klukkan 15:02

Páskamyndin í árSvalur

Enski boltinn var auðvitað að rúlla um helgina og það var bara eitt óvænt sem þar gerðist Newcastle UNNU og mig langar að óska þeim innilega til hamingju með þaðHlæjandi

Spring Break búið og skólinn byrjaðir aftur...fór í economics í morgun og hitti Bjössa og Tóta sem var alveg æði

Við Pála fórum til Panama fyrri helgina og höfðum það ægilega gott þar sem við vorum mest á bakkanum á hótelinu og kíktum aðeins á ströndina, minigolf (sem ég ætla ekki að segja hvernig fór) og fórum í nudd og bara algjört chill...

á leiðinni út að borða í panama

Við vorum síðan í rólegheitum hérna í MGM og fórum á NBA leik á laugardaginn  til Altanta þar sem Hawks voru að spila við Orlando Magic...flottur leikur og Atlanta unnu sem er snilld því þá eru meiri líkur á að þeir komist í úrslitakeppnina og þá gæti verið að boston eða eitthvað stórt lið kíkki í heimsókn sem væri gaman að fara og sjáÞögull sem gröfin
á ennþá efitir að henda inn myndum af því en þær koma bara seinna...

Ég verð nú samt að viðurkenna að ég hefði alveg verið pííííínu til í að vera heima um páskana þar sem það var nú snjór og blíða skilst mér en það verður bara seinna;)

uss næstum búin að gleyma að sýna nýja kúrekahattinn minn

Svenni
Sveinn Elías og Pála Dröfn
14 athugasemdir

Spring Break coming up

14. mars 2008 klukkan 14:02

úps var sona nánast búinn að gleyma þessari síðu...

það hefur allavega margt vatn runnið til sjávar frá síðustu færslu..


  • Mamma og pabbi komu í heimsókn..frekar stutt en það var samt snilld
  • Prince Marinó og Óli Björn keyrðu með þeim frá New York og tékkuðu á stemmingunni hérna í MGM.
  • Fór með þau á Miyakos að borða og Óli var held ég þakklátasti kúnni sem ég veit um, enda gerðu þjónarnir allt fyrir okkurSvalur
  • Síðan fór ég með mömmu og pabba til New Orleans..sem var hrikalega nett ferð..
  • pabbi verslaði klárlega mest í ferðinni!
  • Hitastigið í MGM er allt á uppleið...enda komið spring break
  • Pála mín er loksins komin aftur:*
  • Erum að fara til Panama City Beach í dag..verður gaman....uuu....já
  • það á bara að vera sól og blíða og aldrei undir 20 gráður...
  • Ég er búin að kaupa "dark tanning oil" fyrir mig en sýnist að pála þurfi að nota sólavörn sona fyrstu dagana híhí
  • núna er semsagt málið að maxa sig í vellíðan
  • spiluðum fyrsta spring leikinn okkar í fyrradag..gengur bara betur næst
  • fór í nett test í gær þar sem mæld var súrefnisinntaka, fitumæling, hjartalínurit og allskyns flottheit...
  • er búin að tvöfalda fituprósentuna á fjórum árum!!

nokkrar myndir frá síðustu dögum...



Hús sem að vantar ennþá 2 neðstu hæðirnar í eftir að Katrina kom árið 2005

Mamma og Pabbi í stemmingunni á Bourbon St. í New Orleans

Við Pabbi ferskir í Harrah's Casino


Við Mississippi River í New Orleans


gott í bili...farin til Panama
later

Svenni og Pála

Sveinn Elías og Pála Dröfn
3 athugasemdir

reykjavík

28. febrúar 2008 klukkan 22:45
kjellan er að fara til reykjavíkur á morgun til Erlu minnar Glottandi það verður ýmislegt brallað, kíkt á búðirnar, á bikarleiki, djammið og bara haft það rosa gott bara ekta stelpu helgi, hlakka geggjað tilSvalur
Ég verð nú að fá að knúsa líka Kristínu Birtu aðeins og hitta íddu mína Brosandi  og fleiri :)


í dag eru bara 8 dagar þangað til ég fer til út, loksins er komið að því og bara rétt rúm vika í að ég verði að knúsa svenna sæta ...
Gugga og jónsi, mamma og pabbi svenna, verða komin út þegar ég kem og ná þau í mig til Atlanta og svo verður örugglega túrsistast aðeins þangað til þau fara ámánudeginum Brosandi verður snilld að hafa þau úti Glottandi


Pabbi gamli kom í land í fyrradag þar sem Hafró bannaði allar loðnuveiðar en svo í gærkvöldi kom í fréttunum að þeir mættu fara að veiða þannig að pabbi þurfti að fara aftur("bara" alla leið til vestamannaeyja aftur, í bíl og herjólf), voða stopp, en samt algjör snilld, því þá allavega gat ég hitt hann aðeins áður en ég fer út Brosandi

vonandi fáum við ekki fleiri fréttir af Tornado warnings frá Svenna....
hlakka til að sjá þig loverboy



- Pála Dröfn
Sveinn Elías og Pála Dröfn
3 athugasemdir

tornado í 15 mínútna fjarlægð

18. febrúar 2008 klukkan 17:18

Þetta er reyndar bara mynd sem mér fannst svo flott:)

en það var samt tornado í prattville í gær sem að er um 15 mín akstur frá okkur, það var tornado warning hérna í mest allan gærdag og rosa gaman:) það fór víst einhver wal mart verslun í rúst og einhver íbúðarhús en engin lést samt...

síðan var all star leikurinn í gær, frekar nettur, kíkti yfir til Sigga og Gústa sem voru einmitt nýkomnir frá New Orleans þar sem leikurinn var í gangi...

síðan verður gaman um næstu helgi þegar að man utd taka á móti NUFC...vona að þeir haldi aðra veislu bara...svona í tilefni þess að Sörensen NUFC aðdáandi á afmæli:)

Svenni
Sveinn Elías og Pála Dröfn
8 athugasemdir

ég elska veislur

16. febrúar 2008 klukkan 21:08


Þessi töffari ásamt fletcher, nani, anderson og öðrum United mönnum ákváðu að halda veislu í dag...þeir buðu arsenal að taka þátt en þeir virtust reyndar ekki hafa gaman af þessum hátíðarhöldum en sona er þetta...misjafn smekkur manna víst...síðan eru nú sumir þessara arsenal manna villimenn og þeir eru kannski ekki vanir því að skemmta sér svona;)

mér fannst gaman að lesa skítkastið frá fyrirliða arsenal fyrir leikinn þar sem  hann sagði að´United menn væru hrokafullir...flott hjá honum að skora svo sjálfsmark og haga sér eins og asni!

allavega þá var þetta gaman, pínu svekkjandi samt að gústi og siggi skildu stinga af til New Orleans á troðslukeppnina, hefði verið gaman að horfa á liverpool taka á móti barnsley og síðan united á móti arsenal, held reyndar að það hefði verið búið að hend aöllum út þegar að liverpool leikurinn var búinn, gústi hefur allavega ekki viljað tala við mig í dag, ekki það að ég skilji hann ekki vel þar sem það er ekkert gaman að tala við mig í dagSvalur

en annars er fínt að frétta búið að vera aðeins of kalt samt í vikunni, 1 dag reyndar, en annars búið að vera nokkuð gott:) kom smá tornado warning hérna um daginn en það varð ekkert úr því..

frá litlu að segja að öðru leyti nema hvað ég hlakka til að ástin mín komi út til mín en það er ekki svo langt í það;)...

bæbæ

Svenni

Sveinn Elías og Pála Dröfn
4 athugasemdir